270, Mosfellsbær

Desjamýri 13

104.900.000 KR
Atvinnuhúsnæði
2 herb.
257 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Atvinnuhúsnæði
  • Stærð 257 M²
  • Herbergi 2
  • Stofur 0
  • Svefnherbergi 0
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2024
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

REMAX og Jón G. Sandholt löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu vandað iðnaðarbil að Desjamýri 13, 270 Mosfellsbæ, matshluti nr. 110. Eignin telur 257,9 m2, þar af 100,5m2 milliloft, og er endabil með 202m2 sérafnotareit, sjá meðfylgjandi mynd.

Tvennar innkeyrsluhurðar eru á þessu bili og neyðarútgangur á gafli húss ásamt neyðarútgang af svölum millilofts. VSK kvöð er á húsnæðinu sem kaupandi yfirltekur. Áætluð afhending er í Október 2024, seljandi afhendir eignina fullbúna skv. skilalýsingu.

Fyrir nánari upplýsingar og skoðanir hafið samband við Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða [email protected].

Frágangur utanhúss:
Húsið er byggt á 1800 m2 grunnfleti og skiptist í 10 atvinnubil. Húsið er byggt á steyptri vélslípaðri botnplötu, ómeðhöndluð. Burðarvirki úr húss er úr límtréi, milliveggir eru samlokueiningar með steinull, þakvirki er með límtrésbitum áklætt með pir einingum.
Útveggir áklæddir pir einingum. Rúmgóðar innkeyrsluhurðir ( 4,5 á hæð og 4,0m á breidd ) með gluggum og rafmagnsopnun, ásamt inngangshurð. Plan verður malbikað, girðing verður á lóðamörkum og rafmagnshlið við aðkomu lóðar.

Frágangur innanhúss:
Millilloft með stiga og handriði úr timbri. Innra rými er hvít stálklæðning. Ofnar í hverju bili samkvæmt teikningu. Vegghæð útveggs er 5,8 og mænishæð 9,1m. Rafmagnstafla og þriggja fasa tengill, rafmagn er utanáliggjandi samkvæmt teikningu, vinnulýsing í rýminu. Rýminn afhendast með salerni og handlaug. Gólfniðurfall frágengið. Brunavarnir: Tvær óháðar flóttaleiðir eru í hverju bili, ásamt tveimur óháðum flóttaleiðum af milligólf. Endabil eru með flóttaleið út á svalir. Viðurkennt númerað brunaviðvörunarkerfi verður í öllu húsinu skv. ÍST EN 54 og reglum HMS. 

Ath. þrívíddarmyndir eru einungis til viðmiðunar og gefa ekki mynd á endanlegan frágang eignarinnar að innan sem utan. 

Fyrir nánari upplýsingar og skoðanir hafið samband við Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða [email protected].


----------------------------------------------------------------------- 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila  
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati 
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.