21.02.2023

Átta góð ráð til að afdrasla heimilið

1.Úthlutaðu ákveðnum tíma í tiltekt á hverjum degi

Það þarf ekki að vera meira en 10-30 mínútur. Það er gott að setja tímann inn í símann sinn og leggja hann svo frá sér, til að lágmarka truflun. Gott er að setja sér lítið markmið í hverri tiltekt, svo sem taka til í einn skúffu eða kommóðu.

2.Forgangsraðaðu svæðunum sem þarf að afdrasla

Þú gætir til dæmis byrjað á baðherbergisskúffunum, farið síðan í svefnherbergisskúffurnar, áður en þú ræðst í fataskápana. Best er að einbeita sér að því að klára eitt svæði í einu, og ganga síðan í næst verk á listanum

3.Taktu „fyrir - eftir“ myndir

Það er mjög hvetjandi að skjalsetja muninn sem verður þegar búið að að taka til á ákveðnu svæði. Ef þú ert við það að gefast upp geturðu skoðað myndirnar og séð árangurinn svart á hvítu, og það blæs þér eldmóð í brjóst í frekari afdröslun.

4.Hringdu í vin

Það getur verið erfitt fyrir þig að meta hvort hlutir geri gagn eða ekki, því þú tengist þeim einhverjum tilfinningalegum böndum. Þá er gott að fá utanaðkomandi augu til að leggja mat á draslgildið og vera andlegur stuðningur í hreinsuninni.

5.Flokka, skilið!

Finndu til mismunandi poka fyrir drasl sem þú vilt losna við, og flokkaðu eftir því hvort það á að henda, gefa, selja eða endurvinna. Farðu síðan með pokana sem fyrst út í bíl, bílskúr eða settu þá við útidyrahurðina, til að tryggja að þeir fari af heimilinu sem fyrst.

6.Að gefa er oft betra en að selja

Það er kannski mikið af dóti sem þú gætir alveg selt, en vertu meðvitaður um að það fer bæði vinna og orka í söluferlið, auk þess sem það getur tekið langan tíma að selja. Þannig oft er það varla þess virði, og þú situr uppi með poka fulla af dóti mörgum mánuðum seinna.

7.Finndu réttu tónlistina

Fátt kemur manni í tiltektar gír eins og góð tónlist. En þá eru ástarballöður eða sorglegir kántríslagar ekki málið heldur eitthvað pumpandi og drífandi í hröðu tempói; hresst pönk eða dúndrandi teknó til dæmis. Við tókum saman nokkur lög sem geta auðveldað tiltektina.
Smelltu hér.

8.Keyptu góðar hirslur

Þrátt fyrir hversu mikið þig langar að vera harður í afdrösluninni þá er ekki hægt að henda öllu. Sumir hlutir eru einfaldlega þess eðlis að þú færð ekki af þér að henda þeim vegna mikils tilfinningalegs gildis, og aðra þarftu að hafa tiltæka á heimilinu þó þú notir þá afar sjaldan, eins og til dæmis hjólapumpan þín. En það er ekki þar með sagt að þú þurfir að hafa þá uppi við, og þar koma góðar hirslur til skjalanna. Kommóða með djúpum skúffum er til dæmis gulls ígildi og mikilvægt tól þegar ráðist er í afdröslun.