RE/MAX Ísland logo
Opið hús:08. nóv. kl 14:00-14:45
Skráð 3. nóv. 2026
Söluyfirlit

Ásakór 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
140.4 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
675.926 kr./m2
Fasteignamat
92.800.000 kr.
Brunabótamat
87.710.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Byggt 2007
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Aðgengi fatl.
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2288676
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Stórar suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Málun á stigagangi og ný teppi á sameign. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í nóvember. Seljandi hefur gert upp við húsfélag skv. fyrirliggjandi tilboði og er hluti af framkvæmdasjóði sem fer í þessar framkvæmdir. 
Gallar
Lekaummerki á málningu eru undir hornglugga í stofu. Er komið í ferli hjá húsfélagi að laga þetta (húsfélagsmál).
Einhverjar flísar í eldhúsi eru með holhljóði og hafa verið frá upphafi, líklega ekki vel límdar upprunalega. 
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna: Ásakór 6, 201 Kópavogur
Björt og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í góðu 3ja hæða klæddu lyftuhúsi ásamt stæði í bílakjallara. Það eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, mjög fínar 9,7 fm suðursvalir, glæsilegt útsýni til norðurs að Esjunni með sjávarsýn. Þvottahús er innan íbúðar. Eignin getur verið laus fljótlega. 
Heildarstærð eignar er 140,4 fm íbúð, þar af er ótrúlega rúmgóð geymsla alls 16 fm með aukinni lofthæð. Leigð rafhleðslustöð er við merkt einkastæði í bílastæðahúsi. Gott aðgengi er að húsinu og engir þröskuldar eru innan íbúðarinnar. og skemmtilegar gönguleiðir, Vífilstaðavatn, Ellliðavatn, Guðmundarlundur, Kórinn (HK), verslanir og veitingastaðir. Góðar strætósamgöngur, m.a. strætisvagn nr. 2. sem gengur alla leið í miðbæ Reykjavíkur. Örstutt leið er á flóttamannaleiðina sem liggur alla leið inn í Hafnarfjörð gegnum Heiðmörk.

Núverandi skipulag: Forstofa,gangur, eldhús, stofa, borðstofa, baðherbergi, 3 svefnherbergi og þvottahús. Sérgeymsla í kjallara og stæði í upphitaðri bílageymslu. 

Nánari lýsing eignar:
Fljótandi viðarparket er á öllum gólfum nema flísar eru á votsvæðum og forstofu. 
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp með rennihurðum og innri forstofuhurð sem aðskilur forstofu frá aðalrými.
Alrými: Eldhús, borðstofa og stofa eru í alrými. Stórir gluggar gera rýmið einstaklega bjart og opið. Útsýni með fjallasýn og sjávarsýn þó húsið sé staðsett í efri byggðum Kópavogs. Vítt er um húsið sem er ekki sjálfgefið í dag.
Eldhús: Í eldhúsinu er mjög vel með farin viðarinnrétting sem er innfelld með bakaraofni í vinnuhæð og góðum glugga við vaskinn. Innfelld uppþvottavél. Stæði fyrir ísskáp. við eldhúseyjuna er pláss fyrir barstóla og gott vinnupláss. Helluborð með eyjuháf. 
Stofa/borðstofa:  Eldhúsið er mitt á milli stofu og borðstofu í fljótandi alrými. Stofan er mjög rúmgóð og björt með skemmtilegum hornglugga með útsýni. Gengið er út á suðursvalir frá borðstofunni sem er í hinum enda alrýmisins, Þær komu verulega á óvart, eru ótrúlega stórar og rúmgóðar enda um 10 fm. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með gráum flísum á gólfi en hvítum á veggjum. Vönduð viðarinnrétting með góðu skúffu- og skápaplássi ásamt handlaug. Sturtuklefi er í einu horninu,  upphengt salerni og krómaður handklæðaofn.
Herbergi I: Rúmgott með innbyggðum fataskáp hólf í gólf eftir einum vegg og rennihurðum. Allt er mjög vel með farið. Gluggi til suðurs með rúllugardínu og strimlagluggatjöldum. 
Herbergi II: Mjög rúmgott herbergi nr. 2 með tvöföldum fataskáp hólf í gólf sem fer lítið fyrir bakvið hurðina. Útsýnisgluggi til norðurs, fjalla og sjávar. Strimlagluggatjöld og rúllugardína. 
Herbergi III: Ágætlega rúmgott herbergi með norðurglugga með sama útsýninu og hinir í þessa átt. Tvöfaldur fataskápur bakvið hurðina sem er hólf í gólf. 
Þvottahús: Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Stálvaskur og borðplata sem skapar gott vinnupláss, þvottasnúrur og gott hillupláss. Rennihurð. 
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign sem er skráð 16 fm. Jafnframt er hún með aukinni lofthæð, svo hún býður upp á gífurlega mikið geymslupláss og extra háar hillur.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði, 01B04, fylgir íbúðinni í upphitaðri bílageymslu.
Sameign: Lyfta er í húsinu og sameiginlegt stigahús sem er verið að endurnýja teppi á og mála núna í vetur (stefnt á nóvember). Hjóla- og vagnageymsla auk eignarhluta í bílastæðahúsinu. Flestar íbúðir eiga stæði þar en ekki allar. 

      **SÆKTU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST HÉR**
       
      **SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR**
      (Það er hægt að skoða með og án húsgagna með aðstoð gervigreindar. Smelltu þá á stólinn niðri í vinstra horni)

Þetta er einstaklega björt, vel með farin og falleg íbúð, sem seldist fyrst allra er íbúðir fóru í sölu 2017. það er stutt í Hörðuvallaskóla og Kóraskóla og svolítið lengra í Vatnsendaskóla og Lindarskóla í hina áttina. Leikskólarnir Kór, Baugur og Austurkór. Öll þjónusta er í hverfinu s.s. Krónan, Tvær Nettóverslanir, íþróttaaðstaða í Kórnum og stutt er í útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk. Stutt er í golf og sund í Salarlaug. Fyrir heldri borgara er þjónustumiðstöð með starfsemi á daginn í Boðaþingi. 

Allar frekari upplýsingar um eignina veita:
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu gudbjorg@remax.is og síma 897-7712
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður í netfanginu gylfi@remax.is og síma 822-5124

 
Byggt 2007
Fasteignanúmer
2288676
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
4
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.410.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Kópavogsbraut 99
200 Kópavogur
122,5 m2
Hæð í þríbýlishúsi
513
807 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hlíðarvegur 28
200 Kópavogur
118 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
423
788 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Skjólbraut 4
200 Kópavogur
118,7 m2
Fjölbýlishús
514
774 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin