RE/MAX Ísland logo
Opið hús:11. júní kl 16:00-17:00
Skráð 9. júní 2026
Söluyfirlit

Laugarnesvegur 79

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
95.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.800.000 kr.
Fermetraverð
722.689 kr./m2
Fasteignamat
74.150.000 kr.
Brunabótamat
40.460.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Byggt 1932
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2016835
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
forskalað timbur/steyptur kjallari
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Nýlega drenað kringum hús/frárennslislagnir ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir utan þakglugga (gler nýtt)
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
nei
Lóð
38,42
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna sérhæð á Laugarnesvegi 79, 105 Reykjavík. 
Mikið endurnýjuð sérhæð í risi í tvíbýlishúsi í hinu sívinsæla Laugarneshverfi. Íbúðin er 3ja herbergja með sérinngangi. Gólfflötur íbúðar er talsvert stærri en skráning segir til um íbúðarstærð. Nýr garðskúr er við húsið þar sem búið er að setja upp rúmgott sérþvottahús auk þess sem það getur nýst sem geymsla. Um er að ræða forskalað timburhús með bárujárnsklæðningu og steyptum kjallara. Nýr garðskúr í garði er sérsmíðaður úr timbri. Stór gróinn garður með grasi og þvottasnúrum. Sérinnkeyrsla með snjóbræðslu sem rúmar 1-2 bíla.  Skv. HMS er uppgefin heildarstærð eignarhlutans 95,2 fm, en bílskúr (26,3 fm) úr holsteini sem var á lóðinni var rifinn en er enn í skráningunni. Íbúðin er alls 51,3 fm,  geymsla í kjallara 17,6 fm og nýi garðskúrinn þar sem áður stóð bílskúr 15 fm. Raunstærð er því 83,9 fm í dag (íbúð, geymsla og nýr garðskúr með þvottahúsi).  Að auki þar sem um risíbúð er að ræða er gólfflötur á íbúðinni sjálfri stærri en skráning segir til um.

      **SÆKTU SJÁLFVIRKT HÚSFÉLAGSYFIRLIT HÉR**

     **SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍÐRI SÝN MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR**

Nánari lýsing:
Gengið er inn í íbúðina aftan við húsið. Sérinngangur með kattalúgu og eldri stigi, frekar brattur með nýlegu teppi. 
Íbúðin er með sérinngangi en aðeins eru tvær íbúðir í húsinu. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, baðherbergi, stofu og tvö svefnherbergi.

Forstofa: Nýlegt teppi er stiga sem liggur upp á hæðina. 
Hol/gangur: Frekar mjór gangur tengur saman öll rými íbúðarhlutans. Þar er einnig nýlegur háaloftsstigi með samanbrjótanlegum tröppum. Harðparket.
Stofa/borðstofa: Er sjarmerandi, að hluta til undir súð og því stærri en uppgefnir fm. Harðparket
Eldhús: Endurnýjað eldhús með ljósri viðarinnréttingu og mjög góðu vinnuplássi, því nýtingin er úthugsuð. Innréttingin U-laga. Innbyggð 45 cm uppþvottavél, barkarofn undir borði og span helluborð. Vínilflísar á gólfi og flísar upp á veggi frá borðplötum. Eldhúsið nýtist einstaklega vel með þessum hætti, að hluta til undir súð. 
Baðherbergi: Talsvert endurnýjað, s.s. salerni, vaskaskápur, handlaug, flísar á vegg við vaskaskáp, Nýjar gólfþiljur settar og nýr vínildúkur á gólf. Lögn að handklæðaofni endurnýjuð sem og handklæðaofn. Baðkarið er snyrtilegt með sturtuaðstöðu. Þakgluggi sem er opnanlegur með nýlegu gleri. Hurð að lagnarými er við hlið salernis. 
Herbergi I: Rúmgott með glugga á gafli hússins. Fataskápur (2018) og hillur eftir einum vegg. Tvöföld gardínustöng. Harðparket á gólfi
Herbergi II: Ágætlega rúmgott með kvisti sem eykur lofthæð þess miðað við önnur rými. Nýlegur fataskápur. Rúllugardínur og gardínustöng. Harðparket á gólfi
Háaloft: Háaloft liggur eftir allri íbúðinni, háaloftsstigi í loftinu með samanbrjótanlegum stiga. 
Þvottahús/geymsla í sér garðskúr: Nýr garðskúr úr timbri og bárujárnsklæddur er þar sem áður stóð bílskúr og er 15 fm með ljósi, rafmagni og hitaveitu. Opnanlegur gluggi. Drenað var kringum hann. Þvottahússinnrétting er í honum eftir einum vegg og stálvaskur með köldu og heitu vatni. Nýtist sem þvottahús og hvað sem fólk vill, s.s. hjólageymsla, geymsla eða vinnuaðstaða. 
Sérgeymsla í kjallara: Mjög rúmgóð eða 17,6 fm. 
Sameign: Kjallarinn er einstakur og hrár, hann er undir öllu húsinu og eru öll rými þar opin, einnig sérgeymslan. Búið er að grafa niður í gegnum botnplötu til að búa til mjóa gönguleið til að bæta lofthæðina, en allur aftari hlutinn er með lítilli lofthæð svo maður gengur boginn og upp á stall að sameiginlega þvottahúsinu sem seljendur eru hættir að nota eftir að garðskúrinn komst í gagnið. Lofthæðin innar í kjallara (undir fremri hluta hússins) er er eðlilegri. Kjallarinn er mjög hrár og óinnréttaður. 

Framkvæmdasaga á eignatíma núverandi eigenda:
2025: Garðskúr (sérþvottahús): Byggður viðarskúr úr timbri sérsmíðaður frá Reisum, þar sem áður stóð holsteins bílskúr. Rafmagn, vatn og hiti lagt í skúrinn og ný þvottahúsinnrétting (IKEA). Frárennslirrör var lagt frá skúrnum að niðurfalli við innkeyrslu. Utanhúss: Tröppur að útidyrahurð lagaðar. Eldhús: Nýtt spanhelluborð 
2024: Garðskúr og lóð: Grunnur fyrir garðskúr steyptur. Einkabílastæði/Innkeyrsla hellulögð og ný snjóbræðslulögn í  innkeyrsluna. Ný girðing sett upp í bakgarði, á milli hússins og nýrra bygginga á Hallgerðargötu í eigu Búseta. Búseti sá um framkvæmdina, en viðhald Laugarnesvegsmegin er á ábyrgð húseigenda í okkar húsi.
2023: Gluggar: Nýir sérsmíðaðir gluggar settir í alla íbúðina, nema á baðherbergi, þar var skipt um gler. Herbergi II: Nýr fataskápur 
2022: Hol: Nýr háaloftsstigi með lofthlera 
2021: Baðherbergi: Nýjar gólffjalir á baðherbergi og nýjar lagnir lagðar að handklæðaofni. Nýr handklæðaofn, nýr baðskápur, vínyldúkur á gólf, nýjar flísar bak við salerni og vaskaskáp. Forstofa/hol: Nýtt teppi á stiga (Sisal frá Casa Mia), nýtt stigahandrið.
2020: Eldhús: Eldhús endurnýjað; Ný eldhúsinnrétting (IKEA),bakaraofn, eldavél og uppþvottavél, skipt um gólffjalir í eldhúsi og nýtt gólfefni lagt, vínylflísar, nýjar veggplötur í eldhúsi líka og veggflísar, nýjar lagnir í eldhúsi, eldhús málað. Baðherbergi: Nýtt salerni, baðvaskur og vaskaskápur. Þak og fylgihlutir: Nýjar þakrennur á allt húsið, snjógildrur settar á þakið til að verja þakrennurnar og blaðfang til að verjast laufblöðum.
2019: Dren: Nýtt dren lagt í kringum allt húsið, takkadúkur. Kjallari: Loftræsting sett upp í kjallaranum, kjallaratröppur dýpkaðar og inngangur í kjallara dýpkaður. 

Samandregið er um að ræða mikið endurnýjaða, bjarta og afar sjarmerandi 3ja herbergja efri sérhæð í risi í tvíbýlishúsi í vinsælu hverfi við Laugardalinn þar sem stutt er í allar stofnæðar og miðborgina. Leikskólarnir Hof og Laugasól, ásamt Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla eru í göngufæri. Laugalækur er nokkra metra frá húsinu með allri sinni þjónustu s.s. matvörubúð, kjötbúð, bakaríi og kaffishúsi. Einnig er stutt í Borgartúnið og sívinsæla útivistarsvæðið í Laugardalnum með sundlaug, skautahöll, Þróttaraheimilinu, Líkamsræktarstöð, fallegum göngu-og hjólaleiðum og Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum svo eitthvað sé nefnt. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 / gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 /  gylfi@remax.is
Byggt 1946
26.3 m2
Fasteignanúmer
2016835
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.660.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Lýsing
Bílskúr er ekki lengur til staðar, var rifinn. Búið er að setja viðarskúr og byggja 15 fm þvottahús/ geymslu í staðinn þar. 
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2016835
Byggingarefni
timbur/bárujárnsklætt
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Lýsing
15 fm garðskúr sérsmíðaður og er nýttur sem þvottahús og geymsla í dag. 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Snorrabraut 73
105 Reykjavík
85.5 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
412
818 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Mánagata 20
105 Reykjavík
74.2 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
942 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Laugateigur 17
105 Reykjavík
91.6 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
3
763 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Rauðalækur 20
105 Reykjavík
85.1 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
798 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin