110, Reykjavík (Árbær)

Elliðabraut 20

98.500.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
120 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 120 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2020
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Opið hús: 07. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Elliðabraut 20, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 05 01 04. Eignin verður sýnd mánudaginn 7. október 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Glæsileg 4ra herbergja íbúð á frábærum stað í góðu fjölbýlishúsi með lyftu við Elliðabraut í Norðlingarholti. Eignin telur 120,0 fm auk sér bílastæðis með tengi fyrir hleðslustöð í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins. Skipulag telur forstofu, þrjú svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottaherbergi, rúmgóða stofu og borðstofu með útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa í suð-vestur.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið [email protected] eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]

Nánari lýsing eignar:
Anddyri er rúmgott með fatahengi og innbyggðum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Gott sturtuhorn, upphengt salerni og handklæðaofn og sérsmíðuð innrétting.
Þvottahús er inn af baðherbergi með innréttingu og ræstivaski. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Eldhús er með sérsmíðuðum innréttingum frá AXIS. Tæki frá AEG. Stór eyja með góðu borðplássi, eldavél og háf. Ofn í vinnuhæð og gert ráð fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa/Borðstofa er rúmgott alrými með stórum gluggum og útgengi á mjög rúmgóðar svalir. Parket á gólfi
Svefnherbergi I er rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi II er bjart og nýtist mjög vel.  Fataskápur. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi III   er bjart og nýtist mjög vel.  Fataskápur. Parket á gólfi. 
Frá stofu er gengið út á mjög rúmgóðar svalir með möguleika á svalalokun.
Geymsla er í sameign, 7,4fm.

Með íbúðinni fylgir bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu sem og tengi fyrir hleðslustöð. Sérgeymsla er í sameign sem telur 7,4 fm ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í sameign. Stigagangur er mjög snyrtilegur með flísum og teppi.
Um er að ræða frábæra staðsetningu í Norðlingaholtinu þar sem mjög stutt er í leikskóla og grunnskóla. Þá eru fallegar göngu- og hjólastígaleiðir um hverfið og frábært útivistarsvæði í nágrenni.  

Húsið er byggt af traustum byggingaraðila, MótX, árið 2020.  

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða [email protected]
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.