//Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning//
Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna: Björt og vel skipulögð 3ja herbergja endaíbúð á 3. hæð við Dvergaborgir 10, 112 Reykjavík. Íbúðin er með sérinngangi frá opnum svölum og frábæru útsýni yfir fjöll og haf, m.a. til Snæfellsjökuls. Íbúðin er skráð 83,3 fm. geymsla er skráð 2,5 fm. auk þess eru 7,3 fm. svalir út frá stofu. Íbúðinni fylgir sér bílastæði.
Nánari lýsing. Flísalagt anddyri. Lítil geymsla inn af sem er lokuð með rennihurð. Hol og stofa með útgengi á rúmar og fínar suður-svalir með góðu útsýni. Parket á gólfi. Tvö svefnherbergi með fataskápum og parket á gólfi. Eldhús með hvítri innréttingu og eldavél með bakarofni. Borðaðstaða með frábæru útsýni til sjávar og fjalla, meðal annars Snæfellsjökuls. Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla er á jarðhæð.
Stutt er í skóla (leik-, grunn- og framhaldsskóla). Stutt er í verslun og þjónustu í Spönginni, heillandi göngu og útivistarleiðir, golfvöllinn við Korpúlfsstaði og Egilshöllina með allri þeirri starfsemi sem þar er að finna (bíó, keila, sportbar og veitingastaður, skautasvell, knattspyrnu og fleira).