YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 57 M²
-
Herbergi 2
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 1
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 1967
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
RE/MAX og Guðrún Þórhalla löggiltur fasteignasali kynna bjarta og fallega 2ja herbergja íbúð við Hraunbæ 170, útgengi er úr stofu út á góðar svalir. Íbúðin er rúmgóð 57,9 fm. á fyrstu hæð í barnvænu hverfi þar sem er stutt í ýmsa þjónustu svo sem matvörubúð og grunn- og leikskóla. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði, sjá eignaskiptasamning.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Guðrún löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið [email protected].Frekari upplýsingar um eignina:Gengið er inn í forstofu, með fataskáp. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa er rúmgóð með stórum gluggum, útgengt er út á góðar svalir.
Eldhús með snyrtilegri eldhúsinnrétting, með ofni og helliborði. Flísar á milli efri og neðri skápa. Gráar flísar á gólfi.
Svefnherbergi er með parketi og góðum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt, með sturtu.
Sameiginleg vagna og hjólageymsla á fyrstu hæð.
Einnig fylgir sérgeymsla eigninni á fyrstu hæð.
Rúmgott og snyrtilegt þvottaherbergi er á sömu hæð og íbúð, sem er sameiginlegt. Sameiginleg þvottavél og þurrkari, skráning í tímabók.
- Mjög gott og barnvænt útisvæði er sameiginlegt á baklóð.
- Stutt er í ýmsa þjónustu svo sem matvörubúð, heilsugæslu, sundlaug og leik- og grunnskóla.
- Húsfélagið í stigaganginum er í umsjá Eignaumsjónar.
- Þak var endurnýjað að hluta fyrir rúmlega 12 árum sem og þakrennur að sögn húsfélags.
- Einnig var framhlið hússins málað og viðgert fyrir nokkrum árum. Afturhlið hússins var sprunguviðger og málað og lokið sumarið 2020.
- Búið er að endurnýja hluta af gluggum/gler í húseigninni.
- Húsið var múrviðgert og málað árið 2020. Hluti framkvæmda verður klárað sumarið 2021 á kostnað seljanda.
- Lóðarfélagið er í húseigninni
Hér ferð þú sent söluyfirlit, með því að smella hér. Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún Þ. Helgadóttir löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið [email protected].Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.