YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 88 M²
-
Herbergi 3
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 2
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 2021
-
Lyfta Já
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Opið hús: 08. september 2024 kl. 16:00 til 16:30.Opið hús: Sunnusmári 6, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 0406. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. september 2024 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.
Vel skipulögð 3 herbergja 88,9 fm íbúð á fjórðu hæð með stæði í bílgeymslu að Sunnusmára 6, 201 Kópavogi. Eignin er á besta stað í nýja hluta Smárans í Kópavogi þar sem stutt er í alla þjónustu eins verslanir, skóla, leikskóla og World Class í Smáralind. Allar innréttingar eru frá Selós ehf. Gólfefni er harðparket og flísar á baðherbergi með gólfhita. Snjallsímastýrður mynddyrasími. Allar upplýsingar veitir Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali [email protected] sími 859-5559.
Eignin er laus við kaupsamning, ný máluð og klár til að flyta beint inn. Nánari lýsing eignar:Komið er inn í forstofu með harðparketi á gólfi og góðum forstofuskáp.
Eldhúsið er með hvítum neðri skápum og viðarskápum fyrir ofan með ljósum bekkjum. Ofn í vinnuhæð, span helluborð og innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Stofan er rúmgóð með útgengt út á 7,7 fm svalir sem snúa í austur.
Barnaherbergið er með harðparketi á gólfi og hvítum fataskáp.
Hjónaherbergið er með harðparketi á gólfi og stórum fataskáp. Jafnframt er hurð út á svalir í hjónaherberginu.
Baðherbergið er með gráum flísum á gólfi með gólfhita, snyrtilegri hvítri innréttingu og upphengdu salerni. "Walk in" sturta og handklæðaofn. Aðstaða er jafnframt fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni í sameign en þar er einnig að finna hjólageymslu. Sér
stæði í bílgeymslu fylgir íbúðinni þar sem hægt er að koma upp bílhleðslustöð.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.