YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 121 M²
-
Herbergi 4
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 2023
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Guðmundur Þór Júlíusson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna: Glæsilegar nýjar útsýnisíbúðir í fallegu og sérlega vönduðu 6 íbúða húsi. Aðeins eru tvær íbúðir á hæð.*** Eigning er laus við kaupsamning, aðeins ein íbúð eftir í þessu 6 íbúða húsi.***Íbúð 302 er á 3.hæð íbúðin skiptist í forstofu, alrými með eldhúsi stofu og borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, geymsla er í sameign. Íbúðir skilast allar fullbúnar án gólfefna að undanskildum votrýmum ( samkvæmt skilalýsingu ), inni á baðherbergjum og þvottahúsi sem verða flísalögð, það eru átta bílastæði á lóð.
Smelltu á link til að skoða íbúðina í 3-DBókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]Allar innréttingar eru sérsmíðaðar með ljúflokun á skúffum og skápum. Skápahurðir eru úr melamin, svartar að lit. Eldhúsinnrétting skilast með tækjum frá AEG, spanhelluborði og blástursofni, eyjuháfur með kolasíu (þar sem við á). Fataskápar eru í sama lit og innréttingar. Innihurðir eru hvítar yfirfelldar frá Parka.
Nánar um eign: Álfhólsvegur 23. Eignin er fjögurra herbergja á 3.hæð matshlutans, merkt 302, birt stærð 121,2 fm. Eigninni tilheyrir geymsla í byggingu undir bílastæði, merkt 0107, birt stærð 9,3 fm. Tvennar svalir út frá eldhúsi, borðstofu og stofu. Bílastæði á lóð.Um er að ræða vandaðar og vel skipulagðar íbúðir í 200 Kópavogi, stutt er í alla helstu þjónustu og samgöngur, matvörubúð, sundlaug, leik- og grunnskóla. Einnig eru fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni.
Um er ræða steinsteypt hús, einangrað og klætt að utan. Áhersla er lögð á að brjóta upp útlit hússins með mismunandi litum og áferð. Sérstök áhersla hefur verið lögð á efnisval, áferðir og vandaðan frágang. Svalahandrið eru úr gleri. Útiljós og rafmagnstengill eru á svölum. Lóð afhendist fullfrágengin. Akstursleiðir og bílastæði eru malbikuð. Gangstéttar verða hellulagðar og steyptar. Hitalögn verður í helstu gönguleiðum. Grassvæði verða frágengin.
Byggingaraðili á Álfhólsvegi 23 er GG-Verk ehf.GG-Verk ehf. er öflugt byggingarfélag sem vinnur að fjölbreyttum fasteignaverkefnum ásamt því að vinna að ýmsum byggingaverkefnum á eigin vegum. Fyrirtækið leggur áherslu á að veita heildarlausnir í byggingaverkefnum, góða þjónustu og vandaða vöru.
Útlit og Hönnun:Húsið er hannað af Vektor ehf - hönnun og ráðgjöf. sem einnig sá um hönnun lóðar.
Lagna, hljóð, bruna og burðarþolshönnuð er hannað af Vektor ehf - hönnun og ráðgjöf.
Raflagna- og lýsingahönnun sá Vektor ehf einnig um.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali
[email protected] eða í síma 858-7410
Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali
[email protected] eða í síma 862-2001
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
5. Skipulagsgjald 0,3 % af endanlegu brunabótamati íbúðar.