DALHÚS kynnir í samstarfi við Guðlaugu Jónu fasteignasala s. 661-2363 eða [email protected] og Garðar Hólm fasteignasala s. 899-8811 eða [email protected]:
Til sölu glæsilegar nýjar íbúðir við Arnarhlíð 6, Hlíðarendahverfinu í Reykjavík. 13 íbúðir eru í húsinu frá 48,2 fm – 183,0 fm. Verð frá 54.900.000 kr - 183.000.000 kr. Íbúðir skilast fullbúnar með gólfefnum. Baðherbergin eru með flísum á gólfum og veggir flísalagðir með marmaraáferð. Flísar eru á gólfi í þvottahúsum. Í eldhúsi eru Nobila innréttingar frá GKS með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp með frysti. Innréttingarnar eru ýmist hvítar, svartar með viðaráferð eða hnota. Raftæki eru frá AEG og eða Bora. Veggljós eru uppsett í alrýmum íbúða þar sem gert er ráð fyrir þeim. Í öllum 3ja og 4ra herbergja íbúðum er sér þvottahús. Húsið er einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Aðalhönnuður er KRark, Kristinn Ragnarsson arkitekt. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara fylgja hverri íbúð.
Einstaklega vönduð og falleg stúdíó íbúð, merkt: 213 (Hæð 2 að framan jarðhæð að aftan) við Arnarhlíð í Reykjavík. Íbúðinni fylgir timbur verönd með skjólveggjum. Einnig fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.
Nánari lýsing: Forstofa með góðum PAX fataskápum og harðparketi á gólfi. Eldhús er rúmgott með góðu skápa- og vinnuplássi. Hvít innrétting með grárri borðplötu með marmara áferð. Innbyggður ísskápur- og uppþvottavél. Bakarofn og spanhelluborð frá AEG. Gufugleypir frá Gira. Borðstofa/stofa er opið rými við eldhús. Þaðan er gengið út á suðvestur verönd sem eru timburlagðar og snúa í inngarð. Svefnherbergi er rúmgott með góðum PAX fataskápum, harðparket á gólfi. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Skúffueining með hvítri postulín handlaug og hringspegli með baklýsingu. Þar við hliðiná er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sturta með glerskilrúmi. Upphengt salerni og handklæða ofn. Sérgeymsla er í sameign í kjallara 15,6 m² Bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Bílakjallari er á tveimur hæðum. Merkt B68.
Helstu eiginleikar:
Stæði í bílageymslu
Einangrað að utan
Mikið skápapláss
Uppþvottavél fylgir
Ísskápur með frystir fylgir
Búið er að setja upp ljós í öllum rýmum
Gólfefni fylgja
Sérverönd
Allar nánari upplýsingar veita: Guðlaug Jóna fasteignasali s. 661-2363 eða [email protected] Garðar Hólm fasteignasali s. 899-8811 eða [email protected]