RE/MAX kynnir ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. frábært 3ja herbergja einbýlishús að Þingborg 8, rétt fyrir utan Selfoss. Um er að ræða 67,9 fm hús á einni hæð með verönd og heitum potti. Húsinu hefur verið vel viðhaldið lítur vel út. Eignin er skráð sem einbýlishús þannig að það fær alla þjónustu sem slíkt eins og snjómokstur, ljósleiðara og annað. Hitaveita er í húsinu. Nýlega er búið að endurnýja eldhús og gólfefni í herberjum og alrými nýlega.
Nánari lýsing: Forstofa er með flísaplötum á gólfi og fatahengi. Stofa/borðstofa er björt með harðparketi á gólfi, útgengt er á verönd. Eldhús er með nýlegri innréttingu og harðparketi á gólfi. Hjónaherbergi er fataskápum og harðparketi á gólfi. Aukaherbergi er með harðparketi á gólfi. Baðherbergi er með góðri innréttingu og sturtu. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi og flísar eru á gólfi. Geymsla er við inngang í húsið.