YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 214 M²
-
Herbergi 4
-
Stofur 2
-
Svefnherbergi 4
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 2004
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr JÁ
LÝSING
Opið hús: 06. júní 2023 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Furuvellir 32, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 6. júní 2023 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
REM/AX Senter og Sigríður Guðnadóttir löggiltur fasteignsali kynna: EInstaklega fallegt einbýlishús á einni hæð með auka íbúð á rólegum stað.
Tvöfaldur bílskúr og búið að útbúa auka íbúð í ca helmningi bílskúrsins (með sér inngangi) sem auðvelt er að breyta til baka. Hiti í gólfum þar sem flísar eru innandyrar og hiti í innkeyrslu og hellulögðum göngustígum við húsið.
*****Fasteignamat 2024 verður 120.950.000******Húsið er skráð skv. FMR 155,1 auk 59,3 fm bílskúr, samtals: 214,4
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3D
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT SENT STRAX! Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð
með góðum fataskáp
Eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými , parket á stofu og flísar á borðstofu og eldhúsi.
Falleg dökk innrétting í
eldhúsi og einstaklega fallegur hlaðinn veggur og eyja sem gerir rýmið einstaklega sjarmerandi.
Þvottahús er inn af eldhúsi, flísalagt með ljósri innréttingu, innangengt inn í bílskúr.
Stofan er rúmóð og útgengi er út á stóra afgirta verönd og garð með heitum potti.
Sjónvarpshol er stúkað af í stofunni með parket á gólfi.
Tvö góð barnaherbergi með parket á gólfi og fataskápum
Hjónaherbergi er rúmgott með
fataherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott, flíslagt með dökkri innréttingu, handklæðaofn, upphengdu wc og sturtu.
Aukaíbúð:Sér inngangu baka til, en í dag er einnig innangengt í gegnum bískúrinn.Gengið inn í
forstofu sem er opin inn í eldhús, flísar á gólfi.
Eldhús með ljósri viðar innéttingu, flísar á gólfi.
Stofa/herbergi (opið rými) er rúmgott með gluggum og flísar á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með sturtu og ljósri innréttingu.
Frábær staðsetning á völlunum í Hafnarfirði og er skóli, leikskóli, sundlaug og önnur þjónusta í göngufæri. Nánari upplýsingar gefur Sigríður lgf. í síma 663 3219 eða
[email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.