210, Garðabær

Urriðaholtsstræti 24

88.900.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
117 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 117 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2022
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: 

Vel skipulagðar og vel staðsettar tveggja til fjögurra herbergja 71,9 fm – 160,1  fm. íbúðir í nýju 18. íbúða lyftufjölbýli við Urriðaholtsstræti 24, 210 Garðabæ. 
Íbúðir eru allar með harðparket á gólfi að undanskildum baðherbergjum (og þvottahúsum þar sem á við) sem eru flísalögð.
Stæði í bílageymslu fylgir með 13 íbúðum og sér merkt stæði á lóð fylgir með hinum fimm íbúðunum. 

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]
 

Nánar um íbúðina: Íbúð 01-0404 í Urriðaholtsstræti 24, er þriggja herbergja 117,6 fm. íbúð á 4. hæð, þar af er 7,2 fm. geymsla á 1. hæð. Eigninni tilheyrir 9,2 fm. svalir og sérmerkt stæði í bílakjallara merkt B07.

Sjá má nánari upplýsingar um íbúðir inn á vef okkar: uhs.is 

Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgöngæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.
 
Innréttingar eru allar hvítar (mattar) frá Formus eða sambærilegt. Inngangshurðir íbúða eru brunahólfandi hurðar. Innihurðir eru yfirfelldar. Sólbekkir eru almennt í gluggum á svefnherbergjum og stofu. Borðplötur í eldhúsi og inni á baðherbergi eru plastlagðar frá Egger. Blöndunartæki eru frá Mora eða sambærilegt. Í eldhúsi er helluborð, fjölvirkur bakarofn með blæstri, ísskápur og háfur með gufugleypi (kolasía) eða vifta þar sem á við. Á baðherbergjum er handklæðaofn, upphengt salerni Ifö eða sambærilegt. Sturtur eru flísalagðar. Speglaskápar eða speglar fyrir ofan handlaug, eftir því sem á við. Blöndunartæki eru einnar handar og sturtutæki eru frá Mora eða sambærilegt. Á baðherbergi er tengingar fyrir þvottavél og þurrkara nema þar sem er þvottahús. Gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara. Ræstivaskur er í þvottahúsum.

Tvöfalt hefðbundið gler er í gluggum en gluggar sem snúa að Urriðaholtsstræti eru með aukinni hljóðeinangrun skv. hönnun hljóðverkfræðings.

Á svölum íbúða er möguleiki (ekki innifalið) að setja upp svalalokunarkerfi með póstlausu glerjunarkerfi frá viðurkenndum aðila.


Nánari upplýsingar um ofangreint má sjá í skilalýsingu hússins.

Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / [email protected] Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / [email protected]

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-