110, Reykjavík (Árbær)

Elliðabraut 6 - 320

72.990.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
84 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 84 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2021
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: **Afhendingu við kaupsamning** Um er að ræða 3ja herbergja íbúð merkt 0320 á 3.hæð með tvennum svölum, einar í vestur frá stofu og einar litlar til austurs frá hjónaherbergi. Stæði í bílageymslu fylgja eigninni. Íbúðin er með teimur góðum svefnherbergjum, rúmgóðu baðherbergi með þvottaaðsstöðu í innréttingu, góðu alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. 
 
Allar nánari upplýsingar um eigninar veita:
Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða [email protected]
Þorsteinn lögg.fasteignasali í síma 694-4700 eða [email protected]

 
 
Það skal tekið fram að myndir í auglýsingu íbúðanna er ekki endilega af tiltekinni íbúð en myndir eru settar til að gefa hugmynd um útlit ibúðarinnar.
 
Elliðabraut 4-10 í Norðlingaholti er fallegt 83 íbúða fjölbýli með hlýjum innigörðum, bílageymslu og 17 bílskúrum. Lofthæð er há og í meirihluta íbúða er mjög mikil lofthæð (2,9m). Húsið er á fjórum hæðum með fjórum stigagöngum.
 
Hverfið:
Norðlinaholtið er sérlega fjölskylduvænt hverfi sem heldur vel utan um þig og þína. Náttúruparadísin Heiðmörk og  Elliðadalurinn eru í göngufæri með ótal gönguleiðum.
Skóli og menntun: Skólinn í Norðlingaholti hefur hlotið mikð lof og hefur fengið menntaverðlaun árið 2009. Hverfið er byggt í hring umhverfis skólann, sem veitir aukið öryggi fyrir yngstu íbúa hverfisins.
Skil á íbúðum geta verið samhliða kaupsamningi. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna nema á votrýmum (baðherbergjum og þvottahverbergum) þar eru fallegar 60 x 60 cm flísar frá Parka. Innréttingar eru í íbúðunum eru sérmíðaðar, framleiddar og uppsettar af VOKÉ-III.
Eldhús: innréttingar í eldhúsum eru ljósar með dökkri kantlímingu, dökkgráar að innan og ná upp í loft. Í sumum íbúðum eru eyjur og þær eru ýmist ljósar með dökkri kantlímingu og dökkbrúnni viðaráferð á hliðum og baki eða dökkbrúnni viðaráferð að framan líka. Borðplata er vönduð 19mm brún með marmaraútliti einnig er backsplash í sama efni og borðplatan á milli efri og neðri skápa. Eldhúsinnréttingunum fylgir innbyggður ísskápur (kælir og frystir sambyggðum), ofn og uppþvottavél, í sumum íbúðum er einnig örbylgjuofn.
Baðherbergi og þvottaherbergi: innréttingar á baðherbergjum og þvottaherbergjum (þar sem það á við) eru sérsmíðaðar, framleiddar og uppsettar af VOKÉ-III. Innréttingar á baðherbergi eru í dökkbrúnni viðaráferð með steinborðplötu og innfelldum vaski í borðplötunum, fyrir ofan vask er speglaskápur. Gólf og tveir veggir inni í sturtu flísalagðir ( í einstaka tilfellum eru þrír veggir flísalagðir inni í sturtu). Aðrir veggir eru málaðir í ljósum lit. Sturtur eru ýmist með föstu hertu sturtugleri, sturtuklefar eða með rennihurð. Salerni eru upphengd.
Í flestum íbúðum er gert ráð fyrir þvottaaðstöðu innan baðherbergja og eru tengingar til staðar en ekki útsog fyrir þurrkara.
 
Hurðir: Flestar hurðir inni í séreignum eru háar, hvítar yfirfelldar frá Parka, inngangshurðir inn í íbúðir eru ýmist frá Berkinum eða Parka. Útidyrahurðir í stigagana eru frá Berkinum og í sameign ýmist frá Berkinum eða Parka.
 
Fataskápar: Fataskápar eru sérsmíðaðir, framleiddir og uppsettir af Voké – III með dökkbrúnni viðaráferð að utan og dökkgráir að innan. Fataskápar eru í forstofu og svefnherbergjum, í einstaka íbúðum er ekki fataskápur í einu svefnherbergjanna en fataskápar ná upp í loft.
 
Gler: Gler í íbúðunum er frá Samverk ehf og eru K-einangrunargler.
 
Bílastæði: Sér bílastæði í bílgeymslu fylgir sumum íbúðum og sumum íbúðum ofan á bílageymslu. Gestastæði /sameiginleg stæði eru líka ofanjarðar.
 
Bílskúrar: 17 bílskúrar eru í húsinu og fylgja ákeðnum íbúðum. Þeim íbúðum sem fylgir bílskúr fylgir einnig stæði í bílakjallaranum fyrir framan bílskúrinn.
 
Sjá nánari skilalýsingu og teikningar inn á:
https://ellidabraut.is/remax/

 
Allar nánari upplýsingar um eigninar veita:
Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða [email protected]
Þorsteinn lögg.fasteignasali í síma 694-4700 eða [email protected]