YFIRLIT
-
Tegund Atvinnuhúsnæði
-
Stærð 65 M²
-
Herbergi 0
-
Stofur 0
-
Svefnherbergi 0
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 2022
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163 netfang: [email protected]) kynnir geymsluhúsnæði að Vesturbakka 5, á besta stað við höfnina í Þorlákshöfn
Nánari lýsing:
Húsið skiptist í 12 einingar, 65,3 - 65,5m2 að birtu flatarmáli. Allar einingar eru með ræstivask og salerni. Byggingin er á einni hæð. Lóðin verður malbikuð, gert ráð fyrir einu bílastæði fyrir framan hverja starfseiningu.
Uppbygging húss:Húsið er byggt ofan á steypta sökkla.
Gólfplata: Hefðbundin staðsteypt plata, einangruð að innan með gólfhita. Neysluvatnslagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningm, rör í rör.
Útveggir/ þak / þakkantur / burðarvirki:Allir útveggir og þak hússins eru úr yleiningum, samlokueiningar frá Kingspan. Burðarvirki er límtré. Litur klæðninga að utanverðu er RAL7016 og að innan RAL 9010. Þakkantur er einfaldur, stálklæddur í sama lit og þakefni með utanáliggjandi álrennum og niðurfallsrörum í sama lit.
Gluggar og hurðir: Iðnaðarhurðir eru frá viðurkenndum og þekktu framleiðanda í góðum gæðum, 380cm x 380cm, litur RAL 7016, og rafmótoropnun. Gönguhurðir og gluggar eru úr viðhaldsfríu PVC plasti með tvöföldu einangrunargleri. Litur RAL 7016.
Frárennslis og neysluvatnslagnir: Skólp‐ og regnvatnslagnir eru fullfrágengnar og tengdar fráveitukerfi í götu. Salerni eru fullfrágengin í hverri starfseiningu. Gólfniðurfall er fyrir innan allar innkeyrsluhurðir. Deilikistur fyrir neysluvatn frágengnar í hverri starfseiningu og tengt úr henni í viðkomandi viðtaka: salerni og mögulega eldhúsinnréttingu undir stiga. Brunaslanga frágengin og tengd. Niðurföll af malbikuðum plönum frágengin og tengd fráveitukerfi.
Hitakerfi: Gólfhitakerfi sem er innsteypt í botnplötuna á járnagrind komið í hverja starfseiningu, deilikista með hringrásarkerfi tengd í hverri einingu. Kerfi stjórnað með handvirkum ofnloka.
Rafmagn: Aðaltafla með mælum fyrir hverja starfseiningu frágengin í inntaksrými. Greinatafla frágengin í hverri starfseiningu með einum þriggja fasa tengli við hliðina. Tenglar á nokkrum stöðum í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar. Full lýsing (LED) í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar sem uppfyllir viðkomandi reglur. Raflagnir lagðar í aðgengilegum kapalstigum, auðvelt er að breyta ljósum, slökkvurum, tenglum og slíku ef þurfa þykir. Útiljós við hurðir á hverri starfseiningu sem hægt er að stjórna frá viðkomandi einingu og tengist viðkomandi mæli (ekki sameign). Gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla við hverja einingu.
Lóð: Lóð afhendist malbikuð.
Virðisaukakvöð hvílir á húsinu sem kaupandi yfirtekur.
Skipulagsgjald:
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.
Byggingin verður í notkunarflokki 1. samkv. byggingareglugerð en um er að ræða geymslur í þeim flokki.
Skil hússins miðast við ÍST51:2021 BS4 – Fullgerð bygging. A:T:H þetta er nýr staðall um skil á byggingarstigum húsa.
Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Blöndal, löggiltur fasteignasali í síma: 662-6163 eða á email: [email protected]Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.