ALLAR RE/MAX FASTEIGNASÖLUR ERU SJÁLFSTÆTT STARFANDI OG Í EINKAEIGN
RE/MAX Blaðið

Vörumerkið

RE/MAX er alþjóðleg sérleyfiskeðja með höfuðstöðvar í Denver, Colarado. Keðjan er uppbyggð af sjálstæðum fasteignasölum sem reka skrifstofur sínar í samræmi við RE/MAX kerfið skv. sérstöku leyfi. Vöxtur RE/MAX hefur verið með miklum ólíkindum undanfarin ár og er RE/MAX nú með skrifstofur í yfir 65 löndum. Vörumerki RE/MAX -rauði, hvíti og blái loftbelgurinn með orðunum "Above the Crowd!" sem er þekktasta vörumerkið á þeim fasteignasölumörkuðum sem RE/MAX hefur komið sér fyrir á.

Kerfið

Stofnendurnir Gail og Dave Liniger settu sér háleitt markið á sjöunda áratugnum: Þau ætluðu að byggja upp fasteignasölukerfi sem myndi laða til sín -og halda hjá sér -bestu sölumönnum í heiminum. Gegn því að taka þátt í kostnaði við rekstur skrifstofanna og greiða stjórnunarkostnað áttu sölumennirnir að fá hæstu laun fyrir störf sín og á sama tíma geta nýtt sér allt það hagræði sem fylgir sérleyfiskerfum. Þau kölluðu kerfið RE/MAX, sem er stytting á "real estate maximus".

Allar fasteignasöluskrifstofurnar innan RE/MAX kerfisins eru reknar sem sjálfstæðar einingar af sérleyfishöfunum. Þá eru sölufulltrúarnir á hverri skrifstofu einnig sjálfstæðir rekstraraðilar.

Vöxtur

RE/MAX náði mjög fljótt að dreifa sér um öll Bandaríkin og laða til sín bestu sölumennina á hverjum stað. RE/MAX sölufulltrúarnir, sem heild, urðu fljótt leiðandi á sínum fasteignasölumarkaði, náðu flestum sölunum, veittu bestu þjónustuna og höfðu hæstu tekjurnar.

Nú eru yfir 65 lönd sameinuð í einu kerfi. Árið 1995 byrjaði RE/MAX ævintýrið í Evrópu og nú eru yfir 25 Evrópsk lönd innan kerfisins. Yfir 110.000 sölumenn á yfir 7000 söluskrifstofum í heiminum tengjast meira en milljón sölum á hverjum degi en það eitt og sér gerir RE/MAX að stærsta fasteignasölukerfi í heiminum.

Stöðug þróun kerfisins

RE/MAX hefur frá upphafi stuðlað að bættri þjónustu bæði fyrir sölufulltrúa innan kerfisins og fyrir kaupendur og seljendur. Sölufulltrúarnir fá stöðugt ný tól í hendurnar til að þjónusta betur viðskiptavini sína, en í því felst m.a. aðgangur að alþjóðlegu sölukerfi, námskeið, alþjóðlegar ráðstefnur og samstarf við innlenda og erlenda sölufulltrúa um aðstoð við kaupendur og seljendur allsstaðar í heiminum.

Hagsmunir sölumanna af að starfa með RE/MAX felast m.a. í eftirtöldu:
1. Sölufulltrúarnir fá mestan hluta af sölulaunum vegna þeirra eigna sem þeir selja, en þurfa á móti að taka þátt í rekstrarkostnaði stofunnar.

2. Sölufulltrúarnir tengjast alþjóðlegu kerfi sem með beinum hætti stuðlar að markaðssetningu vörumerkisins sem gefur þeim kost á að selja fasteignir hvar sem er í heiminum.

3. Aðgangur að þróuðum tækjum og tólum til að ná sölumarkmiðum, t.d. RE/MAX Satelliete Network, heimasíðunni remax-europe.com, RE/MAX Mainstreet og eigin MLS-gagnagrunni (Multiple Listing System).

4. Möguleikar á að vera með eigin rekstur, en þó ekki aleinn. Sölufulltrúarnir geta með eigin hætti sett sín markmið, auglýst og kynnt sinn rekstur. RE/MAX Ísland mun sjá sölumönnum fyrir tækjum og tólum til að ná markmiðum sínum og veitir þeim ráðgjöf um hvernig reksturinn getur verið með sem faglegustum hætti.

5. Sölufulltrúarnir verða hluti af kerfi sölumanna sem eru þekktir fyrir að fá hámarks sölulaun og að vera faglegustu sölumennirnir á hverjum markaði.

6. Ráðstefnur, námskeið, símenntun og endurmenntun er huti af daglegu lífi sölufulltrúa hjá RE/MAX
RE/MAX -þjónusta, tæki og tól
RE/MAX heimasíða
RE/MAX var eitt af fyrstu sérleyfiskeðjunum á fasteignamarkaðinum sem setti upp eigin heimasíðu -remax.com. Á þessari risavöxnu heimasíðu, sem stöðugt stækkar, getur viðskiptavinurinn leitað að fasteignum hvar sem er í heiminum og fundið RE/MAX skrifstofu á þeim stað sem hann hefur fundið. Sérstök heimasíða er fyrir hverja RE/MAX skrifstofu og eru margir sölufulltrúar með sína eigin heimasíðu. Sölufulltrúarnir og skrifstofurnar setja tengingu við sína heimasíðu inn á heimasíðuna remax.com.

RE/MAX Mainstreet

- er netaðgangur sem ekki er tengdur veraldarvefnum og er eingöngu fyrir meðlimi RE/MAX og er notað sem tjáskiptamiðill milli RE/MAX eigenda og sölufulltrúa um allan heim. Á svæðinu "Messaging Forum Boulevard" geta aðilar lagt fram spurningar, sent og móttekið upplýsingar og náð sambandi við RE/MAX félaga allstaðar frá í heiminum. "Chat Way" gefur möguleika á að taka þátt í umræðum og deila skoðunum sínum með öðrum RE/MAX félögum.

RE/MAX Satelliete Network -RSN

- er fyrsta, og hingað til eina gervihnattasjónvarpsstöðin á vegum sérleyfisfyrirtækis á fasteignamarkaðinum. RSN dreifir fræðsluefni og upplýsingum fyrir RE/MAX sölufulltrúa í gegnum gerfihnött. Dagskráin er einnig sett á myndbandsspólur fyrir þá sem óska eftir því. RSN sendir út dagskrá fjóra tíma hvern dag.

Roster

- er CD-ROM diskur með upplýsingum um alla sölufulltrúa og skrifstofur sem tengjast RE/MAX. Á diskinum má finna með einföldum hætti RE/MAX skrifstofur eða sölufulltrúa hvar sem er í heiminum. CD-ROM diskurinn er endurnýjaður ársfjórðungslega.
RE/MAX Times
- er fréttablað í dagblaðastærð sem kemur út fjórum sinnum á ári. Blaðið er venjulega uppfullt af upplýsingum um það nýjasta innan RE/MAX, m.a. upplýsingar um sölufulltrúa, skrifstofur, ný lönd eða svæði sem tengjast kerfinu. Fastir liðir eins og "News", "Winners", "Image" og "Synergy" taka á flestum sviðum sem tengjast RE/MAX. Blaðið er gefið út sem alþjóðlegt fréttablað á 15 tungumálum, þ.m.t. á norsku (vonandi einhverntíman einnig á íslensku).

RE/MAX Satellite Network Program Guide

- er sjónvarpsdagskrá næstu þriggja mánaða fyrir sjónvarpsstöðina.

RE/MAX Corporate Report

- er ársskýrsla RE/MAX keðjunnar á alþjóðagrundvelli. Skýrslan gefur upplýsingar um nýjustu mynd af starfsemninni.

RE/MAX Associate Profile

- er árlegt upplýsingarit sem veitir upplýsingar um sölur og tekjur sölufulltrúa í keðjunni, hvað hver og einn hefur í tekjur o.fl. Hér er um að ræða mjög gott "tæki" til að fá nýja sölumenn til starfa, enda veitir ritið mikilvægar upplýsingar um tekjur og möguleika sölufulltrúa hjá RE/MAX.

FRAMES

- er sérleyfis -og stjórnunarkerfi fyrir öll RE/MAX sérleyfissvæði í Evrópu. Þetta kerfi heldur utan um upplýsingar um söluskrifstofur, sölufulltrúa, sölur og tekjur, sérleyfi og aðrar gagnlegar tölulegar upplýsingar um RE/MAX viðskipti í Evrópu. Kerfið er sérstaklega hannað fyrir einstök sérleyfisvæði til markvissrar stjórnunar.

Why RE/MAX

- er tímarit sem aðstoðar þig við að veita viðskiptavinum þínum, nýjum og væntanlegum sölumönnum upplýsingar um RE/MAX og svarar flestum spurningum þeirra.

 

Keyrir á WebEd Pro frá hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn