ALLAR RE/MAX FASTEIGNASÖLUR ERU SJÁLFSTÆTT STARFANDI OG Í EINKAEIGN
RE/MAX Blaðið

Arnarsíða, 603 Akureyri

VERÐ 23.000.000
FASTEIGNAMAT 19.850.000
BRUNABÓTAMAT 24.600.000
TEGUND Raðhús
STÆRÐ 115 m²
HERBERGI 4

Fasteignasala:
RE/MAX Miðlun
Sunnuhlíð 12,600 Akureyri
S: 4121600
Lögg. fasteignasalar
Arnar Guðmundsson

Skráð á vef 14.07.10

RE/MAX Miðlun, Halldór Áskelsson,  sími  821-4907 , kynnir góða 114,7 fm, raðhúsíbúð á einni hæð að Arnarsíðu 12B.

SKIPTI KOMA TIL GREINA Á MINNI EIGN,  HELST Í ÞORPINU.

Íbúðin er á tveimur pöllum og  skiptist þannig: 
Á neðri palli eru forstofa, þvottahús, geymsla, eldhús og hjónaherbergi en barnaherbergin, baðherbergi, stofa og hol eru á efri palli.  Fjögur þrep eru á milli palla.  Rauðleitt plastparket er á stofu, herbergjum og holi.

Forstofa
er með ljósbrúnum flísum á gólfi, þar er laus fataskápur. Þvottahús er inn af forstofu, þar er hvít innrétting með ljósri borðplötu.  Lítil geymsla er inn af þvottahúsi.  Eldhús var allt endurnýjað árið 2008.  Það er með hvítri, sprautulakkaðri innréttingu, með svartri borðplötu og stállitaðri eldavél með keramikhellu, svartar flísar eru á milli skápa, parketflísar eru á gólfi.  Í eldhúsi er góður borðkrókur og þaðan er lúga upp á geymsluloft.  Hjónaherbergi er með góðum, eldri, plasthúðuðum fataskáp.  Barnaherbergi eru bæði með eldri fataskápum.  Baðherbergi er með hvítri, lakkaðri innréttingu og handklæðaskáp, brúnleitar flísar eru á gólfi og ljósar á veggjum að mestu og kringum baðkar.  Stofa er rúmgóð með plássi fyrir borðstofuborð.  Þaðan er útgönguhurð út á nýlegan, stóran og mjög góðan sólpall til vesturs.  Góð íbúð stutt frá Síðuskóla og leikskóla.
Upplýsingar veitir Halldór Áskelsson í síma 821-4907 eða dori@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 1,5% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - kr. 2,000. - af hverju skjali.
4. Lántökugjald banka 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs, sjá gjaldskrá viðkomandi lánastofnu
5. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

ÁHVÍLANDI 20.767.753
BAÐHERBERGI 1
STOFUR 1
SVEFNHERBERGI 3
INNGANGUR Sér
ÞVOTTAHÚS
LYFTUR Nei
UPPHITUN Annað
BYGGINGARÁR 1982
Keyrir á WebEd Pro frá hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn