ALLAR RE/MAX FASTEIGNASÖLUR ERU SJÁLFSTÆTT STARFANDI OG Í EINKAEIGN
RE/MAX Blaðið

Hjallasel, 109 Reykjavík

VERÐ 39.800.000
FASTEIGNAMAT 41.100.000
BRUNABÓTAMAT 44.300.000
TEGUND Parhús
STÆRÐ 266 m²
HERBERGI 8

Fasteignasala:
Fasteignasalan Torg
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
S: 5209595
Lögg. fasteignasalar
Árni Ólafur Lárusson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Bergsteinn Gunnarsson
Jóhanna Kristín Tómasdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Þóra Þrastardóttir

Skráð á vef 13.07.10

Fasteignasalan TORG KYNNIR: **Frábært fermetra verð** Gott raðhús á þremur hæðum með auka íbúð á neðstu hæðinni. Frábært útsýni er úr stofunni og borðstofunni til vesturs. Bílskúr er áfastur húsinu og sérbílastæði.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Berglind í síma 694-4000 eða berglind@fasttorg.is
Lýsing eignar:
Jarðhæð: Komið er inn í mjög rúmgóða forstofu með ljósum flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp úr dökkum við. Þaðan er svo komið inn í opið rými sem rúmar bæði stofu og borðstofu.  Parket er á gólfi og útgengt er á vestur svalir úr frá stofunni. Glæsilegt útsýni er út um glugga stofunar yfir í Kópavoginn og út á sjó. Á sömu hæð er svo eldhúsið. Það er með upprunalegum innréttingum á tvo veggi með efri og neðri skápum í hvítum og dökkum við. Borðkrókur er við glugga og inn af eldhúsinu er búr með litlum opnanlegum glugga og hillum.
Efri hæð: Tvö barnaherbergi eru á hæðinni. Þau eru bæði með teppum á gólfi og tvöföldum fataskápum. Hjónaherbergið er mjög rúmgott með parketi á gólfi og sex földum fataskáp og spegli. Gangur er á milli herbergjanna með útgegni á austur svalir. Baðherbergið er með ljósum dúk á gólfi og upp á veggina alveg upp að lofti. Góðir skápar eru í innréttingu og eru tveir vaskar ofan á þeim með speglum fyrir ofan. Einnig eru innbyggðir skápar beggja vegna við innréttinguna. Bæði baðkar og góður sturtuklefi eru á baðherberginu. Á móti baðherberginu er svo mjög rúmgott þvottahús með hillum og vaski. Hægt er að tengja barkaþurrkara út ef fólk vill.
Kjallari: Þegar gengið er niður tröppur í kjallarann er komið að mjög stóru herbergi sem nýtist sem tómstunda- eða unglingaherbergi. Á því er engin gluggi en mjög góð loftræsting er samt út úr herberginu. Teppi er á gólfinu. Í kjallaranum er svo auka íbúðin.
Auka íbúð í kjallara: Gengið er inn í auka íbúðina aftan við hús. Komið er inn í stofu með plastparketi á gólfi. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, annað er meðal stórt en hitt er frekar í minna lagi. Eldhúsið er með parket dúk á gólfi og innréttingu með efri og neðri skápum í ljósum við. Fyrir framan eldhúsið er einskonar herbergi sem rúmar borðkrókinn. Innaf eldhúsinu er svo snyrtilegt baðherbergi með sturtuklefa, klósetti og vaski. Inn af baðherberginu er svo gufubað.  Ef fólki vantar geymslu þá er líka hægt að notað það sem geymslu.
Úti fyrir framan auka íbúðina í bakgarðinum er lítið gróðurhús.
 
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@fasttorg.is

ÁHVÍLANDI 14.627.287
BAÐHERBERGI 2
STOFUR 2
SVEFNHERBERGI 5
INNGANGUR Sér
ÞVOTTAHÚS
LYFTUR Nei
UPPHITUN Annað
BYGGINGARÁR 1980
Keyrir á WebEd Pro frá hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn