FASTEIGNAMARKAÐURINN EHF. S: 570-4500 KYNNIR MJÖG FALLEGA OG MIKIÐ ENDURNÝJAÐA 125,0 FERMETRA ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ AÐ MEÐTALINNI 11,0 FERMETRA SÉR GEYMSLU Í KJALLARA Í GÓÐU STEINHÚSI Í GAMLA VESTURBÆNUM.
SKIPTI Á SÉRHÆÐ Í PÓSTNÚMERUM 101 OG 107 KOMA TIL GREINA.
Lýsing eignar: Komið er inn í parketlagða forstofu / hol. Mjög stórar samliggjandi parketlagðar og bjartar stofur með útsýni til sjávar. Mögulegt að gera svefnherbergi úr einni stofu. Svefngangur er parketlagður og með fataskápum. Barnaherbergi er parketlagt og með fataskápum. Úr barnaherberg er útgangur á svalir til suðurs.
Hjónaherbergi er rúmgott, parketlagt og með fataskápum. Baðherbergið er nýlega endurnýjað, flísalagt í gólf og veggi og með baðkari með sturtuaðstöðu. Góðar innréttingar eru í baðherbergi og tengi fyrir þvottavél. Eldhúsið er stórt, flísalagt og með fallegum nýlegum innréttingum úr kirsuberjaviði með flísum á milli skápa. Mjög góð borðaðstaða er í eldhúsi og tengt er fyrir uppþvottavél.
Í kjallara hússins er stór sér geymsla, sameiginlegt þvottaherbergi og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Húsið að utan er í góðu ásigkomulagi.
EIGENDUR ERU AÐ LEITA AÐ DÝRARI EIGN, HELST SÉRHÆÐ, Í PÓSTNÚMERUM 101 OG 107.