FASTEIGNAMARKAÐURINN EHF. S: 570-4500 KYNNIR MJÖG FALLEGA OG VANDAÐA 3JA HERBERGJA 86,4 FERMETRA ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ Í VÖNDUÐU OG NÝLEGU LYFTUHÚSI VIÐ LÆKINN Í HAFNARFIRÐI. SÉR INNGANGUR ER AF SVÖLUM. FRÁBÆR STAÐSETNING MIÐSVÆÐIS Í HAFNARFIRÐI. STUTT Í SKÓLA, LEIKSKÓLA, VERSLANIR OG FLEIRA.
Lýsing eignar: Komið er inn um sér inngang í flísalagða forstofu með fataskápum. Þvottaherbergi er flísalagt og með glugga. Innrétting og vinnuborð með vaski eru í þvottaherbergi. Hol er parketlagt. Eldhúsið er opið við stofu, parketlagt og með fallegum eikarinnréttingum með innfelldri uppþvottavél og ísskáp. Eyja í eldhúsi er með helluborði og háfi. Stofan er björt og parketlögð með útgangi á stórar svalir til suðvesturs. Baðherbergið er flísalagt í gólf og hluta veggja. Í baðherbergi eru skápar og baðkar með sturtuaðstöðu. Hjónaherbergi er rúmgott, parketlagt og með fataskápum. Barnaherbergi er parketlagt og með fataskápum.
Á jarðhæð hússins er stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla auk rúmgóðrar sér geymslu.
Húsið að utan er fullfrágengin sem og lóð sem er með hitalögnum í stéttum.