Möðrufell, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
| VERÐ | 13.700.000 |
| FASTEIGNAMAT | 11.600.000 |
| BRUNABÓTAMAT | 0 |
| TEGUND | Fjölbýli |
| STÆRÐ | 64 m² |
| HERBERGI | 2 |
Fasteignasala:
Fasteignasalinn
Sóleyjargata 17 101 Reykjavík
S: 8630402
Lögg. fasteignasalar
Ásdís Ósk Valsdóttir
| Skráð á vef | 12.07.10 |
FASTEIGNASALINN KYNNIR: Mikið endurnýjuð 2ja-3ja herbergja íbúð á 4.ju hæð.
AUÐVELD KAUP: Möguleiki á 95% láni, yfirtekið 9.4M frá Arionbanka á 4.2% vöxtum, uppað 80% frá ILS og síðan lánar seljandi á 3ja veðrétt á 5% verðtryggðum vöxtum allt að 95%
Lýsing eignar:
Hol: með parketi á gólfi, laus skápur sem getur fylgt með.
Baðherbergi: endurnýjað fyrir nokkrum árum, flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, innrétting og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi: rúmgott, innbyggðir skápar og dúkur á gólfi
Eldhús og stofa: opið rými, eldhús endurnýjað fyrir nokkrum árum, efri og neðri skápar á einum vegg og neðri skápar á hálfum vegg sem stúka skemmtilega af stofuna, borðkrókur og dúkur á gólfi.
Stofa: parket á gólfi, búið að stúka af herbergi með glugga úr stofunni sem nýtist vel sem aukasvefnherbergi einnig hægt að breyta aftur í stærri stofu, frá stofu er útgengt á svalir
Sameign: sérgeymsla í sameign, sameiginlegt þvottahús, sameiginleg hjóla-og vagnageymsla.
Að sögn seljanda hefur eftirfarandi verið endurnýjað: Eldhús og baðherbergi tekið í gegn fyrir nokkrum árum. Ennfremur var þakið málað og yfirfarið í fyrrasumar.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir, löggiltur fasteignasali í email: asdis@fasteignasalinn.is eða í síma: 863-0402
| ÁHVÍLANDI | 9.346.765 |
| BAÐHERBERGI | 1 |
| STOFUR | 1 |
| SVEFNHERBERGI | 1 |
| INNGANGUR | Sér |
| ÞVOTTAHÚS | |
| LYFTUR | Nei |
| UPPHITUN | Annað |
| BYGGINGARÁR | 1974 |



