ALLAR RE/MAX FASTEIGNASÖLUR ERU SJÁLFSTÆTT STARFANDI OG Í EINKAEIGN
RE/MAX Blaðið

Klukkuberg, 221 Hafnafjörður

Opið hús, Sunnudaginn 1. ágúst frá til
VERÐ 27.500.000
FASTEIGNAMAT 25.900.000
BRUNABÓTAMAT 24.620.000
TEGUND Fjölbýli
STÆRÐ 141 m²
HERBERGI 4

Fasteignasala:
RE/MAX Senter
Skútuvogi 11a, 104 Reykjavík
S: 4144700
Lögg. fasteignasalar
Ástþór Reynir Guðmundsson
Kristján Ólafsson

Skráð á vef 12.03.10

***BÓKIÐ SKOÐUN HJÁ VENNA Í SÍMA 699 7372***
Eignin er á tveimur hæðum. Sér inngangur er í allar íbúðir blokkarinnar. Gengið er upp allnokkrar tröppur áður en komið er að útidyrum. Komið er inn í litla forstofu með góðum skápum. Forstofa flísalögð. Innaf forstofu er salerni, flísar á gólfi og veggjum. Úr forstofu er gengið inn í stofu, borðstofu og eldhús, allt eitt rými. Parket (hlynur rustic) er á öllum gólfum íbúðarinnar. Parketið er límt niður og var slípað og lakkað fyrir ca fjórum árum. Allar innihurðir eru úr beyki.  Eldhúsinnrétting er úr beyki og er frá IKEA. Bakaraofn og helluborð  í eldhúsi eru frá Bloomberg.

 

Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi og bað. Nýir skápar frá IKEA eru í hjónaherbergi, en góðir skápar í öðru hinna. Úr minna herberginu er gengið út á svalir. 12 mm hert gler er á svalahandriði. Baðherbergi er allt flísalagt. Þar er baðkar og sturta. Sturtan var endurnýjuð fyrir tveimur árum. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í skáp við hlið sturtu.

 

Íbúðinni fylgir ca. 4 m2 geymsla  sem er á sér gangi á jarðhæð. Góðar hillur eru á veggjum. Sérstök frístandandi hjóla- og vagnageymsla er fyrir íbúðir þessa hluta hússins.

 

Bílskúr er 25.5 m2. Þar er bæði heitt og kalt vatn, vaskur, vinnuborð og góðar hillur á þremur veggjum. Í loftinu eru rekkar fyrir 4 fólksbíladekk, 4 jeppadekk (33”) og rekki fyrir skíði, skíðastafi o.fl. Sjálfvirkur opnari er á hurð.

 

Útsýni er óviðjafnanlegt úr íbúðinni þar sem hún er í enda blokkar og snýr í vestur. Óvíða er annað betra útsýni að finna á höfuðborgarsvæðinu.

Allar frekari upplýsingar og bókanir í skoðun veitir Venni í síma 699 7372 og venni@remax.is

ÁHVÍLANDI 10.031.036
BAÐHERBERGI 2
STOFUR 1
SVEFNHERBERGI 3
INNGANGUR Sér
ÞVOTTAHÚS Sér
LYFTUR Nei
UPPHITUN
BYGGINGARÁR 1991
Keyrir á WebEd Pro frá hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn