Icelandic(IS)English (United Kingdom)
There are no translations available.

SIÐAREGLUR RE/MAX

Útgefnar hinn 1. ágúst 1994 af RE/MAX Europe

Formáli

Siðareglur þessar eru settar af RE/MAX Europe. Þær eru settar í þeim tilgangi að efla siðferði og faglegan rekstur RE/MAX keðjunnar. Allir RE/MAX Europe svæðisstjórar, sérleyfishafar og sölufulltrúar (hér eftir kallaðir "samstarfsaðilar RE/MAX") eru bundnir af ákvæðum þessara siðareglna og hafa skuldbundið sig til þess að fara eftir þeim og halda þær í heiðri. Í siðareglunum er tilgreint hvernig samstarfsaðilar RE/MAX eiga að haga viðskiptum sínum almennt og í samskiptum við viðskiptavini, aðra sölufulltrúa, sérleyfishafa og fasteignasala. RE/MAX Europe vonast til þess að þessar siðareglur muni hjálpa öllum samstarfsaðilum RE/MAX til að starfa á þann hátt að það auki veg RE/MAX keðjunnar og verði til þess að almenningur og aðrir sem að stunda samskonar starfsemi líti á RE/MAX sem leiðandi þjónustufyrirtæki á fasteignamarkaðinum í siðferðilegu og faglegu tilliti og hvað varðar sérkunnáttu, reynslu og árangur.

1.gr.

Allir samstarfsaðilar RE/MAX skulu vera kunnugir öllum málum er varða fasteignir á sínu svæði, sínum bæ, sinni borg, sínu héraði eða landi.

2.gr.

Allir samstarfsaðilar RE/MAX skulu vera kunnugir öllum lögum, samþykktum, reglugerðum, opinberri stefnu, hefðum, stöðlum og framkvæmd þeirra, er kunna að varða fasteignir á þeirra svæði, bæ, borg, héraði eða landi, þar með talið það sem viðkemur samkeppnislögum.

3.gr.

Allir samstarfsaðilar RE/MAX skulu vera reiðubúnir til að ganga í gegnum reglulega þjálfun og endur- og símenntun til að afla sér nýjustu þekkingar á tækni, tólum og sérkunnáttu og öðru er tengist starfi þeirra með það að markmiði að auka starfshæfni/starfsframa sinn.

4.gr.

Allir samstarfsaðilar RE/MAX skuldbinda sig til þess að uppræta með öllum ráðum hverja þá starfsemi fasteignasala á svæði þeirra, sem þeir telja geta verið skaðlega almenningi eða geti orðið starfseminni til álitshnekkis. Í samræmi við þessa stefnu skulu samstarfsaðilar RE/MAX ekki stofna til málaferla nema að brýna nauðsyn beri til og það sé óhjákvæmilegt, eða ef að allar aðrar mögulegar leiðir til úrlausnar hafa brugðist.

5.gr.

Samstarfsaðilar RE/MAX skulu ekki beita ósanngjörnum aðferðum til þess að standa betur að vígi en aðrir samkeppnisaðilar.

6.gr.

Þrátt fyrir 4. grein skulu allir samstarfsaðilar RE/MAX reyna að forðast ágreining við alla samkeppnisaðila í viðskiptum sínum.

7.gr.

Samstarfsaðilar RE/MAX skulu ekki gagnrýna starfssemi fasteignasala opinberlega eða láta í ljósi skoðun sína á viðskiptum fasteignasala að fyrrabragði. Ef samstarfsaðilar RE/MAX eru beðnir að tjá sig um viðskipti fasteignasala og ef viðkomandi RE/MAX samstarfsaðili telur við hæfi að bregðast við, skal hann lýsa skoðun sinni á faglegan og heiðarlegan hátt og af kurteisi.

8.gr.

Samstarfsaðilar RE/MAX skulu ætíð gæta og efla hagsmuni viðskiptavinarins, samfara því að koma fram af sanngirni við alla viðskiptaaðila.

9.gr.

Samstarfsaðilar RE/MAX skulu ekki gefa misvísandi upplýsingar til seljanda, kaupanda, fasteignasala eða annarra hlutaðeigandi í viðskiptum, eða að nota villandi eða óheiðarlegar aðferðir í starfsemi sinni.

10.gr.

Allir samstarfsaðilar RE/MAX skulu forðast ýkjur, misvísandi upplýsingar, eða að halda leyndum upplýsingum sem máli skipta varðandi fasteign eða viðskipti og skulu greina frá öllum göllum á fasteign sem þeir vita um og gætu haft veruleg áhrif á söluverðmæti eignar eða haft áhrif á fyrirhugaða notkun hennar; samstarfsaðilar RE/MAX eru þó ekki skuldbundnir til þess að afhjúpa leynda galla á fasteign eða til þess að veita ráðleggingar um eitthvað það sem ekki liggur innan þeirra sérsviðs.

11.gr.

Allir samstarfsaðilar RE/MAX skulu veita sannar og nákvæmar upplýsingar í auglýsingum og öðru kynningarefni sínu og skulu ekki á nokkurn hátt blekkja eða villa um fyrir almenningi.

12.gr.

Samstarfsaðili RE/MAX skal ekki sjálfur eignast hlut í eða kaupa fyrir sjálfan sig, fjölskyldumeðlim eða fyrirtæki sitt fasteign sem skráð er hjá honum. Í tengslum við sölu eignar sem samstarfsaðilinn á sjálfur að fullu eða að hluta, skulu samstarfsaðilar RE/MAX upplýsa kaupanda um að samstarfsaðili RE/MAX eigi að öllu leyti eða að hluta þá eign sem selja skal.

13.gr.

Samstarfsaðili RE/MAX skal ekki mæla með eða ráðleggja viðskiptavini að notfæra sér þjónustu annarra aðila eða fyrirtækja sem hann á fjárhagslegra hagsmuna að gæta, án þess að greina frá þessum hagsmunum um leið.

14.gr.

Allir samstarfsaðilar RE/MAX skulu ráðleggja viðskiptavinum sínum að leita sér lögfræðiaðstoðar ef það þjónar best hagsmunum viðskiptavina.

15.gr.

Samstarfsaðilar RE/MAX skulu ekki neita neinum viðskiptavini um fulla þjónustu vegna kynþáttar, litarháttar, trúar, kyns, fötlunar, fjölskylduaðstæðna eða þjóðernis. Samstarfsaðilar RE/MAX skulu ekki vera aðilar að áætlun eða samkomulagi um að mismuna einstaklingi eða hópum vegna kynþáttar, litarháttar, trúar, kyns, fötlunar, fjölskylduaðstæðna eða þjóðernis.

16.gr.

Sérhver samstarfsaðili RE/MAX skal veita faglega þjónustu a.m.k. á því gæðastigi sem fólk getur almennt búist við þegar það leitar til hans. Enginn samstarfsaðili RE/MAX skal veita ráðleggingar um málefni sem liggja utan hans faglega sérsviðs.

17.gr.

Hver sá samstarfsaðili RE/MAX sem er fulltrúi kaupanda skal gera þeim fasteignasala sem er fulltrúi seljanda grein fyrir þeim tengslum við fyrsta mögulega tækifæri.

18.gr.

Ef eign er ekki á söluskrá, skal sá samstarfsaðili RE/MAX sem er fulltrúi kaupanda, gera seljanda grein fyrir stöðu sinni við fyrsta tækifæri.

19.gr.

Hver sá samstarfsaðili RE/MAX sem er fulltrúi seljanda fasteignar skal gera kaupanda grein fyrir stöðu sinni við fyrsta tækifæri.

20.gr.

Allir samstarfsaðilar RE/MAX skulu allt þar til viðskiptum er lokið, upplýsa seljanda um öll kauptilboð sem berast á hlutlægan og hlutlausan hátt eins fljótt og auðið er.

21.gr.

Samstarfsaðilar RE/MAX skulu greina þeim sölufulltrúum, umboðsmönnum eða fasteignasölum, sem óska samstarfs, frá því ef samþykkt kauptilboð liggur fyrir.

22.gr.

Samstarfsaðilar RE/MAX skulu ekki eiga hlut að neinu samkomulagi, þar sem þeir þiggja greiðslu frá fleiri en einum viðskiptaaðila án fullrar vitneskju allra aðila.

23.gr.

Allir samstarfsaðilar RE/MAX skulu hafa sérstakan bankareikning, aðskilinn frá þeirra eigin fjárhag, til vörslu þess fjár sem þeir gæta fyrir aðra.

24.gr.

Samstarfsaðilar RE/MAX mega ekki auglýsa, eða heimila starfsmönnum sínum eða aðilum sem tengjast þeim á annan hátt, að auglýsa eign til sölu án þess að geta um nafn þeirrar RE/MAX skrifstofu sem sér um söluna og nafn þess löggilts fasteignasala sem er ábyrgur fyrir rekstri þeirra stofu.

25.gr.

Skilti, þar þess er getið að fasteign sé til sölu, til leigu eða fáist í skiptum fyrir aðra, má ekki setja upp á eigninni án samþykkis eiganda.

26.gr.

Samstarfsaðili RE/MAX getur því aðeins sagst hafa "selt" eign ef að hann var sá sölufulltrúi, umboðsmaður eða fasteignasali sem skráði eignina, jafnvel þó að salan hafi farið fram í samvinnu við annan fasteignasala eða sölufulltrúa. Eftir að sölu er lokið má hinn skráði sölufulltrúi, umboðsmaður eða fasteignasali hins vegar ekki meina öðrum samstarfsmönnum, sölufulltrúum, umboðsmönnum eða fasteignasölum að auglýsa "samstarf", "þátttöku" eða "aðstoð" sína við söluna eða kynna hlut sinn á svipaðan hátt.

27.gr.

Samstarfsaðilar RE/MAX skulu að svo miklu leyti sem mögulegt er, ganga úr skugga um að allar fjárhagslegar kvaðir og skuldbindingar milli sölufulltrúa og viðskiptavina þeirra varðandi sölu eigna séu skriflegar, löglega skráðar, að þær greini frá nákvæmu samkomulagi aðilanna og fylgi öllum lagalegum skilyrðum.

28.gr.

Þegar aðili að sölu undirritar eða setur upphafsstafi sína við skjal, skulu samstarfsaðilar RE/MAX sjá til þess að viðkomandi aðili fái afrit af því skjali.

29.gr.

Við eignaskipti sem unnið er að í samvinnu, skulu allar greiðslur í tengslum við söluna greiðast til þeirrar skrifstofu sem fasteignasali eða sölufulltrúi tengist, en ekki til aðila persónulega.

30.gr.

Ef fasteign er skráð í einkasölu hjá fasteignasala, skal ræða við þann fasteignasala varðandi sölu eignarinnar, en ekki við eiganda fasteignarinnar, nema með samþykki viðkomandi fasteignasala.

31.gr.

Ef fasteign er skráð í einkasölu hjá RE/MAX samstarfsaðila, skal sá aðili sjá um að setja fram skilmála og skilyrði fyrir samstarfi við aðra. Aðrir sölufulltrúar, umboðsmenn og fasteignasalar, skulu ekki gera ráð fyrir að boð um samstarf feli einnig í sér boð um greiðslu. Við sameiginlega sölu þarf sölufulltrúi, umboðsmaður eða fasteignasali að komast að samkomulagi við þann fasteignasala sem er með eign á skrá um rétt sinn til þóknunar, áður en tilboð í fasteign kemur fram.

32.gr.

Samstarfsaðili RE/MAX sem að nýtir sér upplýsingar af skrá annars fasteignasala um fasteign, skal ekki láta þriðja aðila þessar upplýsingar í té, né bjóða honum til samstarfs, nema með samþykki þess fasteignasala sem fasteignin er skráð hjá.

33.gr.

Samstarfsaðilar RE/MAX geta hafa samband við viðskiptavini annarra fasteignasala í þeim tilgangi að bjóða eða ganga til samninga um annars konar fasteignaþjónustu, ef sú þjónusta sem þeir bjóða er af öðrum toga en sú þjónusta sem viðskiptavinurinn nýtur þegar hjá öðrum fasteignasala.

34.gr.

Samstarfsaðili RE/MAX skal ekki leitast við að fá á sína skrá, fasteign sem er skráð í einkasölu hjá öðrum fasteignasala. Þetta hindrar þó ekki samstarfsaðila RE/MAX í að leita eftir skráningu eftir að fyrri skráning rennur út. Ef fasteignasali neitar að upplýsa hvenær skráning rennur út, eða hverjir skilmálar hennar eru, má samstarfsaðili RE/MAX hafa samband við eiganda til þess að afla þessara upplýsinga og má einnig ræða um skilmála fyrir því að fá að skrá eignina í framtíðinni, eða að taka við skráningu sem gengur í gildi um leið og eldri skráning rennur út.

35.gr.

Ef eigandi fasteignar sem skráð er í einkasölu hjá fasteignasala hefur samband við samstarfsaðila RE/MAX, og viðkomandi samstarfsaðili RE/MAX hefur ekki beint eða óbeint átt frumkvæðið að viðræðunum, má samstarfsaðili RE/MAX ræða um skilmála fyrir því að fá að skrá eignina í framtíðinni, eða að taka við skráningu sem að gengur í gildi um leið og eldri skráning rennur út.

36.gr.

Ef staðfest er að eigandi fasteignar hefur eign sína skráða í einkasölu hjá fasteignasala má samstarfsaðili RE/MAX ekki reyna að fá hana á skrá hjá sér.

37.gr.

Samstarfsaðilar RE/MAX skulu ekki dreifa pósti eða annars konar skriflegum tilboðum til fasteignaeigenda, sem eru með eignir sínar skráðar í einkasölu hjá fasteignasala nema að nöfn þeirra séu skráð á almennan póstlista og þessum pósti/tilboðum því ekki beint sérstaklega til þeirra.

38.gr.

Áður en samstarfsaðili RE/MAX fellst á skráningu fasteignar, er það skylda hans að kanna sjálfur hvort eignin sé þegar á skrá í einkasölu og skráning sé enn í gildi hjá einhverjum fasteignasala.

RE/MAX Europe mun taka á brotum á þessum siðareglum á þann hátt sem félaginu finnst við hæfi, en þó koma fram á sanngjarnan og réttmætan hátt. Brot á þessum siðareglum getur einnig verið brot á ákveðnum atriðum sérleyfissamnings eða annarra samninga og getur haft í för með sér riftun samstarfs á milli RE/MAX og samstarfsaðila RE/MAX. Innihald þessara siðareglna er alltaf bundið og háð lögum viðkomandi lands. Ef ákvæði í siðareglum gengur gegn gildandi lögum, opinberum samþykktum, reglum eða reglugerðum, skulu þessi gildandi lög, opinberu samþykktir, reglur eða reglugerðir ganga framar siðareglum þessum. RE/MAX Europe áskilur sér rétt til þess að breyta siðareglunum ef þurfa þykir. Einnig má rétthafi hvers lands, með samþykki RE/MAX Europe, breyta siðareglunum til þess að aðlaga þær hefðum og venjum í fasteignasölu á viðkomandi svæði. Hugtakið "Siðareglur" eins og það er notað hér að framan vísar alltaf til "Siðareglna RE/MAX Europe" sem geta breyst frá einum tíma til annars.

 
.